Skilmálar

Gullsmiðir Erling og Helga Ósk áskilja sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða að hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilin er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.


Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar innan þriggja virkara daga frá pöntun. Sé varan ekki til eða dráttur verður á afhendingu mun fulltrúi fyrirtækisins hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vöru. Gullsmiðir Erling og Helga Ósk ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Gullsmiðum Erling og Helgu Ósk  til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Frí heimsending er á pöntunum nema annað sé tekið fram í lýsingu á vöru.


Verð á vöru og sendingarkostnaður

Öll verð í vefversluninni eru með 24% vsk og sendingarkostnaður er innifalinn í verði. Allar vörur eru sendar með Íslandspósti beint heim að dyrum.


Skipti og skil á vöru.

14 daga skilaréttu er á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan er keypt. Varan þarf að vera ónotuð og í fullkomnu lagi í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað.  Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni út fyrir aðra vöru er gefinn út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneignarnótan er í formi kóða sem er notaður hér á síðunni þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfu degi.


Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn, eða endurgreiðum sé þess krafist.  Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup.


Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party


Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.

Governing law/Jurisdiction These Terms and Condition are in accordance with Icelandic law.

 

Gullsmiðir Erling og Helga Ósk

Geirsgata 5

101 Reykjavík

Sími: 8916338

www.erlingoghelgaosk.is